Hér sérðu, án þess að kunna neitt í lánafræðum, hvað lánin þín kosta, hvort þú ráðir við þau og hvað þú kemst hæst í verði þegar þú kaupir.
Ertu að kaupa, eða langar þig að vita hvað þú getur keypt? Hakaðu við „Ég er að kaupa eign eða á eign nú þegar“ í skrefi 1, þá bætast kaupverð, eigið fé og hámarkskaupverð við.
Lykiltölur beggja dæma hlið við hlið. Hakið merkir lægri töluna, eða hærri þar sem hærra þýðir meira eftir í vasanum. Það segir hvað munar á dæmunum, ekki hvort þeirra hentar þér.
Nokkur atriði um lán sem koma mörgum á óvart. Flest þeirra geturðu prófað sjálf/ur í reiknivélinni hér að ofan.
Höfuðstóll verðtryggðs láns fylgir vísitölu neysluverðs: í hverjum mánuði hækkar hann um verðbólgu mánaðarins (verðbætur) áður en vextir og afborgun reiknast. Vextirnir eru raunvextir og reiknast af verðbættum höfuðstól. Greiðslan er því lægri í upphafi en af sambærilegu óverðtryggðu láni, en hún hækkar í takt við verðbólguna og fyrstu árin geta eftirstöðvar á nafnverði hækkað þrátt fyrir að greitt sé af láninu, því verðbæturnar eru hærri en afborgunin. Á föstu verðlagi lækkar skuldin þó frá fyrsta degi. Í jafngreiðsluláni (annuitet) er greiðslan fastur „raunkróna“-fjöldi sem verðbætist; í láni með jöfnum afborgunum greiðist höfuðstóllinn jafnt niður og greiðslubyrðin er hæst fyrst. Útreikningsaðferðin hér hefur verið sannreynd upp á krónu við talnadæmi Neytendastofu um þróun höfuðstóls verðtryggðra lána.
Samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands nr. 1300/2025 um hámark greiðslubyrðar fasteignalána (þær leystu af hólmi reglur nr. 1130/2025 þann 3. desember 2025) má mánaðarleg greiðslubyrði fasteignalána að hámarki vera 35% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum, þ.e. útborguðum launum, og 40% hjá fyrstu kaupendum. Greiðslubyrðin í því mati er ekki raungreiðslan af láninu þínu heldur stöðluð viðmiðunargreiðsla: jafngreiðslulán með að hámarki 40 ára lánstíma og að lágmarki 5,5% vöxtum sé lánið óverðtryggt, en að hámarki 25 ára lánstíma og að lágmarki 3% vöxtum sé það verðtryggt. Séu raunverulegir vextir eða lánstími strangari en viðmiðin gilda þau raunverulegu. Reiknivélin notar þessar forsendur. Lánveitendur hafa þrönga undanþáguheimild (allt að 10% útlána á ársfjórðungi frá október 2025), svo niðurstaðan hér er viðmið en ekki endanlegt greiðslumat.
Hlutdeildarlán HMS ber hvorki vexti né afborganir og endurgreiðist við sölu sem hlutfall af verðmæti eignarinnar þá. Þar sem engar mánaðarlegar greiðslur falla til telur það ekki í greiðslubyrðarhlutfallinu. Í reiknivélinni er það skráð sérstaklega, undir „fjármögnun án mánaðarlegra afborgana“, og birtist í súlunni sem borgar kaupverðið en ekki í 35%-viðmiðinu.
Öðru máli gegnir um samninga þar sem þú átt eignina í sameign með fyrirtæki og greiðir því fyrir afnot af þeirra hlut, svo sem ýmis „leigu til eignar“ úrræði. Með 3. mgr. 4. gr. reglna nr. 1300/2025, sem er nýmæli frá desember 2025, teljast allar slíkar greiðslur til sameiganda sem heldur á hlutnum í atvinnuskyni með í greiðslubyrðinni, óháð því hvenær þær koma til greiðslu. Sama grein kveður á um að miða skuli við allar greiðslur sem falla til vegna öflunar íbúðarhúsnæðis, að undanskildum opinberum gjöldum, umsýsluþóknunum og lántökugjöldum. Reiknivélin reiknar þessar greiðslur ekki með, enda ræðst fjárhæð þeirra af samningnum hverju sinni. Eigi þetta við um þig er greiðslubyrðarhlutfallið hér lægra en það sem lánveitandinn reiknar.
Súlan „Nær þetta upp í kaupverðið?“ leggur saman eigið fé þitt og þau lán sem borga íbúðina, og ber það saman við kaupverðið að viðbættum kostnaði við kaupin. Með lánum í kaupin teljast fasteignalán á aðalhúsnæðinu og lán á lánsveði. Lán á útleigueign, bílalán og námslán telja ekki með, því þau fara ekki í þessi kaup.
Áætlaði kostnaðurinn við kaupin er reiknaður sem stimpilgjald (0,8% af fasteignamati, helmingur hjá fyrstu kaupendum), þinglýsing tveggja skjala og lántökugjald upp á 60.000 kr. á hvert nýtt fasteignalán. Lántökugjaldið er föst krónutala, ekki hlutfall af láninu, og fellur alla jafna niður við fyrstu kaup. Þetta eru viðmiðunartölur. Gjaldskrár breytast milli ára og lántökugjaldið er mismunandi eftir lánveitendum, svo hafir þú tölur frá fasteignasalanum eða bankanum skaltu velja „Mín eigin tala“ í skrefi 1 og slá þær inn. Sért þú líka að selja eign reiknast þóknun fasteignasala með: settu söluverðið inn í skrefi 1 og prósentuna sem þú semur um, oftast 1 til 2% að viðbættum 24% vsk. Hér er hins vegar ekki reiknað með kostnaði við flutning, breytingar á eigninni eða húsgögn.
Framfærslutölurnar eru framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara, sótt af island.is. Þau eru uppfærð á tveggja mánaða fresti og byggja á rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna. Viðmiðin eru miðgildi, sem þýðir að helmingur heimila eyðir meiru en þetta. Húsnæðiskostnaður og leikskólagjöld eru ekki inni í þeim og eru því skráð sérstaklega hér. Athugið að neysluviðmið félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, sem stundum er vísað til, hafa ekki verið uppfærð síðan í október 2019 og eru í heildarendurskoðun; þau eru ekki notuð hér.
Lánveitendur byggja greiðslumat sitt á sama grunni en hver þeirra setur sín eigin viðmið og lítur auk þess á greiðslusögu, starfsöryggi og fleira. Matið hér er því vísbending um hvort dæmið sé raunhæft, ekki svar frá bankanum.
Hámarkskaupverðið er lægsta talan af þrennu: því sem greiðslubyrðarviðmið Seðlabankans leyfir, því sem veðþakið leyfir miðað við eigið fé þitt, og því sem stendur eftir þegar framfærsla og rekstur eignarinnar hafa verið dregin frá. Í öllum þremur tilvikum er notuð viðmiðunargreiðsla Seðlabankans en ekki raungreiðsla fyrsta mánaðar, því greiðsla verðtryggðs láns er lægst í upphafi og hækkar með verðbólgunni.
Reiknivélin gerir ráð fyrir jafnri verðbólgu allan lánstímann, föstum vöxtum og engum lántöku- eða greiðslugjöldum. Vaxtabætur, sérstakur húsnæðisstuðningur og skattaáhrif eru ekki með. Niðurstöðurnar eru til glöggvunar og koma ekki í stað greiðslumats lánveitanda eða fjármálaráðgjafar.
Ég smíðaði þessa síðu fyrir mig og vini mína og deili henni með þér. Ef hún sparar þér tíma, þá er kaffibolli vel þeginn.Reikningur 0527-26-1416, kt. 471025-0380.