Um mig
Ég heiti María Björg Ágústsdóttir og rek ráðgjafarfyrirtækið Multa Bene Agere. Ég aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki við að koma skipulagi á reksturinn og innleiða skýra og skilvirka vinnuferla. Árangurinn lýsir sér í einfaldara vinnulagi, skýrari ábyrgð og fastmótuðum venjum sem auðvelda eftirfylgni.
Ég er einnig stofnandi www.saganmin.is, sem býður upp á persónulegar sagnaskráningar þar sem einstaklingar og fjölskyldur geta varðveitt og deilt eigin lífs- og fjölskyldusögum á einstakan hátt. Síðan leggur áherslu á að gera söguskráningu aðgengilega, skapandi og örugga fyrir alla aldurshópa.
Bakgrunnur minn liggur í fjármálum, rekstri og viðskiptaþróun, þar á meðal í stjórnunarstöðum á eftirlitsskyldum mörkuðum. Ég nýt mín best þar sem krafa er um nákvæmni, góða skjalagerð og eftirfylgni. Ég hef gaman af því að greina flöskuhálsa, skýra hlutverk og byggja upp einfalda strúktúra sem virka í daglegum rekstri.
Samhliða þessu tek ég að mér þýðingar og ritstýringu á viðskiptatextum á íslensku og ensku þar sem blæbrigði og nákvæmni skipta máli, allt frá vefefni yfir í innri skjöl og skýrslur. Ég legg áherslu á að textinn sé ekki aðeins rétt þýddur heldur haldi sínum rétta tón og hljómi eðlilega á báðum tungumálum.
Ég er staðsett á Íslandi en vinn með viðskiptavinum bæði hér heima og erlendis. Ég tek að mér afmörkuð verkefni eða veiti áframhaldandi stuðning eftir þörfum.
Sendu póst á mba@multabene.is með upplýsingum um hvað mætti ganga betur, hverju þú vilt breyta og hver tímaramminn er.
Hvernig get ég aðstoðað
Hér eru nokkur dæmi um það sem ég get gert fyrir þig:
- Útreikningar, töflureiknar og fjárhagslíkön sem eru skýr og auðvelt að uppfæra.
- Stuðningur við framkvæmd: Frá ákvörðun til eftirfylgni.
- Ákvarðanagögn sem tryggja skýrleika: Samantektir (one-pagers), kynningar og hnitmiðuð minnisblöð.
- Hlutverk og ábyrgð: Hver gerir hvað, og hvenær.
- Einföldun vinnuferla og fastmótaðar rekstrarvenjur.
- Úrvinnsla flókinna upplýsinga: Skýr minnisblöð, kynningar og Excel-líkön.
- Þýðingar og ritstýring: Milli íslensku og ensku þegar þess er þörf.
Starfsreynsla
Aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki við að skapa skýrleika í daglegum rekstri og framkvæmd. Ég umbreyti einnig flóknum upplýsingum í skýrar samantektir og kynningar sem auðvelda samstillingu og eftirfylgni.
Leiddi verkefni á sviði viðskiptaþróunar, rekstrar sjóða, markaðsmála og sérhæfðra fjárfestinga hjá stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins (eignir í stýringu um 349 ma.kr.).
Bar ábyrgð á fjárfestatengslum og rekstri fyrir 49 milljarða dollara þrotabú og samræmdi rekstrar-, fjármála- og regluvörsluferla undir ströngum tímamörkum. Sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður ISB Holding ehf. hafði ég jafnframt yfirumsjón með 95% eignarhlut búsins í Íslandsbanka og tryggði faglegt stjórnarfar þar á milli.
Menntun & réttindi
Tungumál & íþróttir
Var landsliðsmarkvörður í knattspyrnu og lék sem atvinnumaður í sænsku úrvalsdeildinni (Damallsvenskan).
Íslenska sem móðurmál. Fullkomin tök á ensku í ræðu og riti. Hef grunnkunnáttu í sænsku og get bjargað mér við lestur á dönsku, norsku og þýsku.
← Tilbaka